Strompurinn lagaður

Andrés Skúlason

Strompurinn lagaður

Kaupa Í körfu

Djúpivogur | Þó að strompum á híbýlum manna hafi farið ört fækkandi í áranna rás eru þeir menn þó ennþá til sem vilja halda þeim við. Þessi virðulegi strompur á einbýlishúsinu Dölum á Djúpavogi á auðsjáanlega að fá að halda reisn sinni áfram og er húseigandanum Pálma Fannari Smárasyni greinilega mjög annt um strompinn sinn, þar sem hann klappar honum að utan með viðgerðarefni. Ólafur Björnsson, einlægur strompaaðdáandi, fylgist grannt með verkinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar