Ljósmæður á nálastungunámskeiði

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ljósmæður á nálastungunámskeiði

Kaupa Í körfu

TÓLF íslenskar ljósmæður sitja og stinga hver aðra með örfínum nálum. Þær eru á námskeiði hjá Lilleba Anckers og Guðlaugu Maríu Sigurðardóttur, nálastungufræðingum og ljósmæðrum, og eru að æfa sig í að hjálpa konum á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu með nálastungum. Lilleba Anckers er frá Svíþjóð og hefur langa reynslu af ljósmóðurstörfum. Hún er nálastungufræðingur að auki og hefur miðlað af reynslu sinni og kennt ljósmæðrum á Norðurlöndunum að beita nálunum. Þessi ævaforna austræna aðferð hefur rutt sér til rúms á 80-90% fæðingarstaða í Svíþjóð en þar var byrjað að nota nálastungur á fæðingardeildum árið 1992. Nálastungur hafa einnig verið notaðar með góðum árangri í Noregi frá árinu 1995 og í Danmörku frá árinu 1998 myndatexti: Nálastunga í þennan punkt er m.a. notuð við ógleði og uppköstum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar