Ísland - Danmörk 0:2

Ísland - Danmörk 0:2

Kaupa Í körfu

EFTIR góðan sigur á Norður-Írum í Belfast á laugardaginn varð íslenska landsliðið í knattspyrnu karla að bíta í það súra epli að tapa fyrir Dönum, 0:2, á Laugardalsvelli í gær að viðstöddum rúmlega 10.000 áhorfendum. Leikurinn var liður í riðlakeppni Evrópumótsins 2008. Danir gerðu út um leikinn með tveimur mörkum í fyrri hálfleik en þetta var fimmtándi sigur þeirra á Íslendingum í nítján leikjum. | Íþróttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar