Magadans

Magadans

Kaupa Í körfu

Magadanshús Josy Zareen efnir til sérstakrar afmælissýningar í Tjarnarbíói klukkan átta á laugardagskvöld, í tilefni þess að ár er síðan kennsla hófst þar. Magadanshúsið hefur frá upphafi verið leiðandi í útbreiðslu og kynningu á magadansi á Íslandi, og er jafnframt eina dansstúdíóið á Íslandi sem sérhæfir sig í þessari fornu og dulmögnuðu listgrein. Í Magadanshúsinu leggja nú hátt á annað hundrað konur á öllum aldri stund á magadans, en rúmur fjórðungur nemenda stúdíósins mun stíga á svið á morgun og sýna margs konar seiðmagnaða dansa.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar