Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs

Kaupa Í körfu

KÓPAVOGSBÆR mun koma til móts við fjölskyldur ungbarna með því að greiða þeim mánaðarlega 30 þúsund krónur fyrir hvert barn frá lokum fæðingarorlofs þangað til barn hefur leikskólavist eða hefur náð tveggja ára aldri. Reiknað er með að byrjað verði að greiða út 1. nóvember. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, og Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs, kynntu tillögu meirihluta bæjarstjórnar fyrir fjölmiðlum í gærdag, skömmu eftir að hún hafði verið samþykkt á bæjarráðsfundi. Eftir að tillagan hafði verið lögð fram í bæjarráði óskuðu minnihlutaflokkarnir jafnframt eftir því að vera meðflutningsmenn. MYNDATEXTI: Létt á foreldrum Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, kynnti nýja tillögu um greiðslur til foreldra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar