Ársskýrsla ársins

Sverrir Vilhelmsson

Ársskýrsla ársins

Kaupa Í körfu

GLITNIR banki hlaut í gær verðlaunin Ársskýrsla ársins 2005, sem félagið Stjórnvísi veitir. Bakkavör Group og Össur hlutu einnig sérstaka viðurkenningu Stjórnvísi fyrir vel gerðar ársskýrslur. Í rökstuðningi dómnefndar Stjórnvísi segir að ársskýrsla Glitnis sé aðgengileg og vönduð og gott jafnvægi ríki á milli einstakra málaflokka. "Hún er mjög upplýsandi fyrir hluthafa, fjárfesta og aðra hagsmunaaðila bankans og tekur á öllum helstu þáttum í starfsemi hans og framtíðaráformum. Hún uppfyllir í öllum aðalatriðum þær kröfur sem Kauphöll Íslands og dómnefndin gerir til góðrar ársskýrslu um efni og framsetningu." MYNDATEXTI: Afhendingin- Árni M. Mathiesen og Vala Pálsdóttir, Kjartan Arnfinnsson og Magnús Torfason frá Glitni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar