Guðbjörg Magnúsdóttir

Eyþór Árnason

Guðbjörg Magnúsdóttir

Kaupa Í körfu

Guðbjörg Magnúsdóttir verður hátíðarstjóri á Miklatúni á morgun, en þar ætla íbúar Miðborgar og Hlíða að efna til sameiginlegrar hverfahátíðar, nú í fyrsta skipti. Á hátíðinni troða upp ýmsir skemmtikraftar úr hverfunum tveimur og er stefnt að því að viðburðurinn verði árlegur hér eftir. Auk Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða koma að hátíðinni Háteigs-, Hlíðar- og Austurbæjarskóli, félagsmiðstöðvarnar Frostaskjól og Tónabær, Háteigskirkja og Hallgrímskirkja, Skátafélagið Landnemar, Félagsmiðstöð aldraðra við Vesturgötu 7, Íþróttafélagið Valur og Kramhúsið. MYNDATEXTI: Hátíðarstjórinn Guðbjörg Magnúsdóttir frístundaráðgjafi fer á tónleika hvenær sem tækifæri gefst og býr til glaðlega muni úr keramiki þess á milli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar