Baldurshagi

Skapti Hallgrímsson

Baldurshagi

Kaupa Í körfu

ÍBÚÐATURNARNIR tveir, sem fyrirtækið SS-Byggir er að reisa á Baldurshagalóðinni neðan við lögreglustöðina, eru að taka á sig endanlega mynd. Verkið er á áætlun og íbúðir verða afhentar 15. desember að sögn Sigurðar Sigurðssonar, eiganda fyrirtækisins. Verkið var mjög umdeilt í bænum á sínum tíma. Fyrirtækið vildi reisa eitt 12 hæða hús á lóðinni, með 36 íbúðum, en eftir mótmæli hluta bæjarbúa féll meirihlutinn í bæjarstjórn frá því að leyfa slíka byggingu en heimilaði hins vegar tvö sjö hæða hús með allt að 40 íbúðum. Var það samþykk í bæjarstjórn í árslok 2004. MYNDATEXTI: Af stað - Framkvæmdir við "tvíburaturnana" nýhafnar á Baldurshagalóðinni neðan lögreglustöðvarinnar á Akureyri. Myndin er tekin 25. júní 2005.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar