Gallerí + á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Gallerí + á Akureyri

Kaupa Í körfu

LIST kvennanna þriggja sem nú sýna í Gallerí + á Akureyri er afar ólík en þó gengur samsýning þeirra ágætlega upp. Hrafnhildur Halldórsdóttir setur fram innsetningu í svörtu í hliðarrými þegar inn er komið, rými sem helst minnir á helli. Vinnuaðferð hennar hér minnir á uppbrot málverksins í malerískar og dýnamískar einingar sem sjá má í verkum fleiri listamanna nú um stundir, tam. verkum Margrétar H. Blöndal, eða í verkum Jessicu Stockholder en verk eftir þá áhrifamiklu listakonu eru væntanleg á samsýningu í Hafnarborg þegar þetta er skrifað. Hrafnhildur nefnir innsetningu sína "The Hide" og eykur þannig á tilfinningu áhorfandans fyrir helli, eða skjóli einhvers dýrs, frumstæðu rými. MYNDATEXTI: Stina Wirfelt -"Sýnir ljósmyndir og myndband þar sem óvæntar og húmorískar tengingar eiga sér stað. Birtingarmyndir myndlistar í samtímanum eru sýndar á skemmtilegan hátt, auðskiljanlegan og myndrænan."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar