Hugrún Helga og Arinbjörn, nýir eigendur Greifans

Skapti Hallgrímsson

Hugrún Helga og Arinbjörn, nýir eigendur Greifans

Kaupa Í körfu

HUGRÚN Helga Guðmundsdóttir og Arinbjörn Þórarinsson kynntust á veitingastaðnum Greifanum þegar þau störfuðu þar bæði, hafa nú búið saman í nokkur ár og stóðust ekki mátið þegar þeim bauðst að kaupa gamla vinnustaðinn. Þau taka við rekstrinum 1. október næstkomandi. Arinbjörn, sem er 32 ára, vann í eldhúsinu á Greifanum í sjö ár með skóla, frá 1993 til 2000, en Hugrún Helga, sem er 29 ára, hóf störf á staðnum 1995 og lærði þar til framleiðslumanns. Þau eru bæði fædd og uppalin á Akureyri. "Við höfum búið síðustu sex ár í höfuðborginni en ákváðum að flytja aftur heim í sumar," segir Arinbjörn í samtali við Morgunblaðið. MYNDATEXTI: Örlagastaður - Hugrún Helga og Arinbjörn kynntust þegar þau unnu á Greifanum og stóðust ekki mátið þegar þeim bauðst að eignast staðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar