Pakkhús Postulanna, Listasafn Reykjavíkur

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Pakkhús Postulanna, Listasafn Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

ÞAÐ verður nóg um að vera í Pakkhúsi postulanna í Listasafni Reykjavíkur um helgina. Á laugardag endurflytja Ingibjörg Magnadóttir og Kristín Eiríksdóttir gjörning sem þær frumfluttu við opnun sýningarinnar. Gjörningurinn fer fram klukkan 16. Á sunnudaginn klukkan 15 fer fram leiðsögn um sýninguna og klukkan 16 sama dag verður Ásdís Sif Gunnarsdóttir með upptöku á framtíðarsápuóperu í tengslum við verk sitt Tribal TV (Future Crash II). MYNDATEXTI: Ásdís Sif Gunnarsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar