Magni Ásgeirsson mætir í Smáralind

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Magni Ásgeirsson mætir í Smáralind

Kaupa Í körfu

HEYRA mátti skrækina langar leiðir þegar Magni steig á svið í Smáralind í gær, og tók lagið fyrir æsta aðdáendur sem flykkst höfðu á staðinn til að berja átrúnaðargoð sitt augum. Áður en Magni flaug frá Los Angeles, þar sem hann hefur dvalið mestallt sumarið, var slegið til veislu í boði Íslendingafélagsins þar í borg á heimili Tryggva Þorsteinssonar og Erlu Ingjaldsdóttur. Létu rokkstirnin Toby og Dilana sig ekki vanta í gleðskapinn og hafa eflaust fengið að heyra hjá Magna hversu vel Íslendingar kunna að skemmta sér. MYNDATEXTI: Stjarna - Magni var að sjálfsögðu með gítarinn við hönd og söng fyrir alsæla aðdáendur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar