Jón Eysteinsson

Helgi Bjarnason

Jón Eysteinsson

Kaupa Í körfu

Keflavík | Jón Eysteinsson lætur af embætti sýslumanns í Keflavík 1. október en þann dag verður liðið nákvæmlega þrjátíu og eitt ár frá því hann var skipaður sýslumaður í Gullbringusýslu og bæjarfógeti í Keflavík og Grindavík. Síðar bættist við embætti bæjarfógeta í Njarðvík þannig að Jón bar óvenjulangan starfstitil á fyrstu árum sínum í embætti. Áður hafði hann verið fulltrúi hjá embættinu og héraðsdómari þannig að hann hefur unnið hjá sama embættinu í 36 ár, þar af í 35 ár samfleytt. "Þetta er orðið gott og ég fer mjög sáttur úr þessu," segir Jón í samtali við Morgunblaðið. MYNDATEXTI: Hættir sáttur- Jón Eysteinsson hefur verið bæjarfógeti og sýslumaður í Keflavík í nákvæmlega 31 ár þegar hann lætur af störfum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar