Búmenn í Grindavík

Kristinn Benediktsson

Búmenn í Grindavík

Kaupa Í körfu

Grindavík | Íbúar eru fluttir inn í fyrstu íbúðirnar sem Búmenn byggja við hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grindavík og hafinn undirbúningur að byggingu fleiri íbúða. Forgang hafa félagsmenn sem orðnir eru sextugir. "Við erum búin að vera lengi að reyna að koma þessu þarna fyrir og þetta hefur verið sérstakt áhugamál mitt," segir Bogi G. Hallgrímsson, fyrrverandi stjórnarmaður í Félagi eldri borgara í Grindavík og einn af íbúum í nýju Búmannaíbúðunum við Víðihlíð. MYNDATEXTI: Húsnæði - Fólk úr hópi eldri Búmanna hefur forgang að nýjum íbúðum félagsins sem byggðar eru í nágrenni hjúkrunarheimilisins Víðihlíðar. Fyrstu íbúarnir hafa nú flutt inn og byrjað er að undirbúa næsta áfanga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar