RIFF

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

RIFF

Kaupa Í körfu

ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) hélt blaðamannafund í gær í húsakynnum Tjarnarbíós af því tilefni að hátíðin hefur fest kaup á, og komið þar upp, mjög fullkominni 35 mm kvikmyndasýningarvél. Vélin sem er gríðarstór og af nýjustu gerð er framleidd af þýsku verksmiðjunni Kinoton sem er leiðandi á sviði sýningarvéla og hlaut verksmiðjan m.a. Óskarsverðlaunin fyrir tækninýjungar. Að sögn forsvarsmanna hátíðarinnar kostaði vélin með uppsetningu um 4 milljónir króna en við fjármögnunina naut hátíðin aðstoðar fjársterks aðila, hvers nafn er ekki gefið upp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar