Karöflur

Eyþór Árnason

Karöflur

Kaupa Í körfu

Þegar bera á fram gott vín er ekki verra að eiga fallega karöflu til þess að bera guðaveigarnar fram í. Bæði geta karöflurnar verið fallegar ásýndar og svo eru þær þegar best tekst til hannaðar til þess að hlúa sem best að víninu og leyfa því að njóta sín til fulls. Hér getur að líta nokkrar ólíkar karöflur sem hægt er að nota við margvísleg tækifæri, hvort sem til stendur að halda formlegt matarboð með dýrindisréttum eða óformlegri samkomu þar sem vinir spjalla saman yfir góðum veigum. MYNDATEXTI Massimo Lunardon-karafla og glös í stíl. Karafla 13.500 kr., glas 2.500 kr. Mirale, Grensásvegi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar