Skemmtiferðaskip

Skemmtiferðaskip

Kaupa Í körfu

FIMMTA þúsund farþega stigu frá borði skemmtiferðaskipanna Maasdam, Sea Princess og Aida Blu sem lágu hvert á sínum hafnarbakkanum í Reykjavíkurhöfn á mánudag. "Það er óhætt að segja að þetta sé mesti fjöldi sem komið hefur í land úr skemmtiferðaskipum í Reykjavíkurhöfn á einum degi," segir Gunnar Rafn Birgisson, forstjóri ferðaskrifstofunnar Atlantik sem hafði milligöngu um ferðir fyrir farþega Sea Princess og Aida Blu auk Kristina Regina og Ocean Majesty sem voru í Akureyrarhöfn á sama tíma. MYNDATEXTI: Skemmtiferðaskipin Maasdam og Aida Blu við Korngarð í Sundahöfn. Auk þeirra lá Sea Princess við Skarfabakka.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar