Öryggisvika sjómanna

Brynjar Gauti

Öryggisvika sjómanna

Kaupa Í körfu

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra setti formlega öryggisviku sjómanna síðdegis í gær, mánudag. Athöfnin fór fram um borð í skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sæbjörgu, úti á Sundum og seig samgönguráðherrann um borð í skipið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF. Eftir að hafa sigið úr þyrlunni minnti Sturla Böðvarsson á að ekki væri alltaf logn og blíða eins þennan dag þegar Landhelgisgæslumenn og aðrar björgunarsveitir ynnu störf sín og sagði hann þyrlurnar ákaflega mikilvæg björgunartæki. Þá sagði hann ríkja gott samstarf meðal þeirra fjölmörgu aðila sem sinntu björgunarmálum. MYNDATEXTI: Mennirnir í brúnni - Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, um borð í Sæbjörgu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar