Kárahnjúkavirkjun í ágúst 2006

Steinunn Ásmundsdóttir

Kárahnjúkavirkjun í ágúst 2006

Kaupa Í körfu

Á málþingi SSA var m.a. fjallað um aðila vinnumarkaðarins og innflytjendur á Austurlandi. Hafliði Hafliðason hjá Þróunarstofu Austurlands, sem vinnur í starfshóp um málefni innflytjenda, sagði nokkur atriði mikilvægari en önnur hvað atvinnulífið varðaði og brýnt að atvinnurekendur væru vel upplýstir. Nefndi hann nauðsyn þýðinga á ráðningarsamningum, að atvinnurekendur tilkynntu sveitarfélögum án tafar um erlenda starfsmenn og að greiður aðgangur þyrfti að vera að túlkum. Erlent starfsfólk ætti að hafa greiðan aðgang að grundvallarupplýsingum á vinnustöðum, t.d. gegnum netið þar sem alls óvíst væri að það hefði aðgang að slíku heima við, námskeið til handa atvinnulífinu um fjölmenningarlega vinnustaði væru nauðsyn og veita bæri góðar grunnupplýsingar í fyrsta starfsviðtali. MYNDATEXTI: Erlent vinnuafl er víða um land.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar