Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason

Kaupa Í körfu

Í litlum stjörnusjónauka sjást fjarlægar vetrarbrautir, tvístirni og gasþokur. Einungis ein vetrarbraut sést með berum augum frá norðurhveli, en hún nefnist Andrómeduvetrarbrautin og hefur ljósið verið tvær milljónir ára á leiðinni frá henni til jarðar. Það er reyndar gaman að velta því fyrir sér hvort það séu einhverjar vitsmunaverur í Andrómeduvetrarbrautinni sem eru að horfa í áttina til okkar," segir Sverrir Guðmundsson stjörnuáhugamaður í samtali við Daglegt líf, en hann ásamt félaga sínum Sævari Helga Bragasyni, sem deilir sama áhugamáli, ætlar að bjóða upp á stjörnuskoðun í kvöld í Minjasafni Orkuveitunnar í Elliðaárdal, gegnt gömlu rafstöðinni. MYNDATEXTI: Stjörnuáhugamenn - Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason ætla að efna til stjörnuteitis í Elliðaárdalnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar