Frosti Ólafsson

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Frosti Ólafsson

Kaupa Í körfu

Frosti Ólafsson lærði hagfræði við Háskóla Íslands og Macquarie University í Sydney, og útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Að loknu námi starfaði hann hjá gjaldeyris- og afleiðumiðlun Landsbanka Íslands, en tók nýlega við starfi hagfræðings Viðskiptaráðs Íslands. "Ástralía er stórskemmtilegur og góður staður, hvort heldur sem maður vill heimsækja landið eða búa þar til lengri tíma. Ástralar eru vinalegir og landið stórbrotið," segir Frosti, en bendir á að það taki um 40 klukkutíma að ferðast þangað frá Íslandi þannig að helgarferðir til Sidney verða líklega seint að veruleika. MYNDATEXTI: Umræða - Frosti segir Viðskiptaráð hafa mótað umræðuna um þau málefni sem skipta félaga þess máli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar