Jökla stífluð

Ragnar Axelsson

Jökla stífluð

Kaupa Í körfu

ANDRÚMSLOFTIÐ var þrungið spennu þegar lokur hjárennslisganganna vestan við Kárahnjúkastíflu runnu niður um hálfníuleytið í gærmorgun og vörnuðu Jöklu rennslis fram Jökuldal til ósa. Um hundrað manns voru viðstaddir atburðinn í þokusudda, m.a. starfsmenn Landsvirkjunar og Impregilo, fjölmiðlafólk og landeigandi Brúar á Jökuldal. Greiðlega gekk að renna lokunum fyrir vatnselginn, en farvegurinn var þar um 12 metra djúpur. MYNDATEXTI: Vegferð - Jökla rennur frá Brúarjökli í suðvestri að Ytri Kárahnjúk þar sem hún brýtur á stíflunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar