Hálslón

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hálslón

Kaupa Í körfu

UM kvöldmatarleytið í gær var Hálslón komið upp í 45 metra næst Kárahnjúkastíflu. Lónið var þá einn ferkílómetri að flatarmáli, en vatnið mun þekja 57 ferkílómetra þegar það hefur náð fullri stærð. Að sögn Sigurðar Arnalds, talsmanns Kárahnjúkavirkjunar, mun vatnsborðið halda áfram að hækka um nokkra metra daglega næstu daga, en í vetur má gera ráð fyrir að yfirborðið hækki aðeins um tvo metra á mánuði. Sigurður Aðalsteinsson á Vaðbrekku segir mun minna í Jöklu við Brú en var þótt enn hafi hún sinn jökulbrúna lit.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar