Icelandair Group á hlutabréfamarkað

Eyþór Árnason

Icelandair Group á hlutabréfamarkað

Kaupa Í körfu

ICELANDAIR Group verður skráð á hlutabréfamarkað fyrir árslok en félagið er nú í eigu FL Group. Uppgefið heildarvirði Icelandair Group eru 43 milljarðar króna og er áætlaður söluhagnaður 26 milljarðar miðað við heildarvirði hlutafjár. Samkvæmt samkomulagi sem FL Group og Glitnir hafa gert með sér mun Glitnir, að undangenginni hefðbundinni áreiðanleikakönnun, sölutryggja 51% hlut í Icelandair Group. Þetta þýðir að Icelandair hverfur úr samstæðu FL Group þegar áreiðanleikakönnun lýkur, að líkindum um miðjan október. MYNDATEXTI: Samkomulag - Glitnir mun sölutryggja 51% hlut í Icelandair fyrir FL Group. F.v.: Jón Karl Helgason, Hannes Smárason og Bjarni Ármannsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar