Melaskóli 60 ára

Eyþór Árnason

Melaskóli 60 ára

Kaupa Í körfu

MERKUM tímamótum verður fagnað í Melaskóla við Hagatorg á morgun en þá eru 60 ár frá því að kennsla hófst við skólann. Af því tilefni verður boðið upp á alls kyns skemmtiatriði í skólanum á morgun og eru gamlir nemendur, kennarar og aðrir velunnarar sérstaklega boðnir velkomnir á hátíðina sem hefst kl. 15. Dagurinn hefst í raun á að tekið verður hátíðlega á móti nemendum skólans kl. 8.15 og mun ungt tónlistarfólk úr Tónskóla Do Re Mí leika á hljóðfæri áður en skólastarf hefst. Að auki verður frumfluttur skólasöngur - en aldrei áður hefur Melaskóli átt sinn eigin skólasöng. MYNDATEXTI: Skóladagur á enda Nemendur Melaskóla þeystust út til annarra leikja og starfa þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar framhjá í gærdag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar