Nemendur í Rimaskóla

Sverrir Vilhelmsson

Nemendur í Rimaskóla

Kaupa Í körfu

Hópur nemenda í níunda bekk Rimaskóla í Grafarvogi hefur möguleika á því að flýta fyrir sér í námi með því að taka tíunda bekkjar efni í stærðfræði. Þar með geta þau tekið samræmt próf í vor, kjósi þau það. Alls eru 23 nemendur að nýta sér þetta. Að sögn S. Lilju Guðbjörnsdóttur stærðfræðikennara mælist þetta einkar vel fyrir auk þess sem þessi kostur telst vera hluti af einstaklingsmiðuðu námi. Hingað til hafa þau átt kost á að taka samræmd próf í níunda bekk, en þetta er í fyrsta skipti sem þau eru undirbúin sérstaklega fyrir það. MYNDATEXTI: Nemendurnir - Alls nýta 23 níundu bekkingar í Rimaskóla sér hraðferðina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar