Verslunarsiðfræði í Versló

Verslunarsiðfræði í Versló

Kaupa Í körfu

Hefur viðskiptavinurinn alltaf rétt fyrir sér? Hvaða verðmæti eru í húfi? Hvaða dygðir eru verslunarfólki mikilvægastar? Hverjar eru ábyrgðir og skyldur verslunarfólks? Eru siðareglur í gildi í verslunum? Hvernig er best að taka á bókhaldssvikum og hnupli? Þessum spurningum og fleirum er reynt að svara í verslunarfagnámi, sem fullorðinsfræðsludeild Verslunarskóla Íslands í samvinnu við VR býður upp á, en allt verslunarfólk frá smáum sem stórum fyrirtækjum getur sóst eftir að komast í námið. MYNDATEXTI: Kennarinn - Ármann Halldórsson segist leggja áherslu á að jarðtengja umræðuna í siðfræðikennslunni við lífið í versluninni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar