Fram - Gummersbach 26:38

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Fram - Gummersbach 26:38

Kaupa Í körfu

Guðjón Valur Sigurðsson lék við hvern sinn fingur og skoraði sextán mörk EFTIR að Alfreð Gíslason hafði vakið leikmenn Gummersbach af þyrnisrósarsvefni í fyrri hálfleik fengu Íslandsmeistarar Fram að kynnast handknattleik á heimsmælikvarða í síðari hálfleik þegar þeir mættu Gummersbach í fyrsta leik sínum í Meistaradeild...Lokatölur 26:38 Gummersbach í vil eftir að liðið hafði aðeins verið marki yfir í hálfleik, 13:14. MYNDATEXTI: Fyrirliðarnir Guðjón Valur Sigurðsson lék varnarmenn Fram oft grátt í Laugardalshöll í gær. Hér hefur Þorri Gunnarsson, fyrirliði Fram, þó náð að stöðva starfsbróður í þetta sinn. Guðjón Valur gerði sér lítið fyrir og skoraði alls 16 mörk gegn íslenska liðinu og fór hann á kostum í leiknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar