Alþingishúsið lýst með bleikum ljósum

Brynjar Gauti

Alþingishúsið lýst með bleikum ljósum

Kaupa Í körfu

ALÞINGISHÚSIÐ fékk á sig nýjan og öllu bleikari blæ en venjulega í gærkvöldi. Ekki var um að ræða spellvirki mótmælenda heldur hafði Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, ákveðið í samráði við forystu Krabbameinsfélagsins að lýsa bleiku ljósi á Alþingi næstu daga. Með því sýnir Alþingi og alþingismenn stuðning við baráttuna við brjóstakrabbamein og slæst í hóp margra þekktra húsa um víða veröld í sérstöku árveknisátaki. Forseti Alþingis og varaforsetar voru viðstaddir þegar húsið skipti litum í gærkvöldi og virtust ánægðir með breytinguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar