Haust í Reykjavík

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Haust í Reykjavík

Kaupa Í körfu

ÓVENJUHLÝTT hefur verið í veðri það sem af er hausti og hefur sólin verið dugleg að láta sjá sig síðustu dagana. Þó að álit manna á árstíðinni sé misjafnt, og haustið ekki uppáhaldstími allra, er óhætt að segja að litir haustlaufanna fái notið sín í veðurblíðunni. Eflaust reyna margir að njóta sólarinnar þegar hún lætur sjá sig og í gær mátti sjá fjölda fólks úti við enda um að gera að nota hverja sólarglætu þar sem aldrei er að vita hvenær Vetur konungur gengur í garð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar