Kolmunna af Hatton-Rockall landað

Friðþjófur Helgason

Kolmunna af Hatton-Rockall landað

Kaupa Í körfu

Kolmunna af Hatton-Rockall landað Tvö íslensk skip lönduðu í gær kolmunna sem veiddist á Hatton- Rockall-svæðinu, um 60 mílur vestur af landhelgi Írlands. Hákon ÞH landaði um 1.000 tonnum af kolmunna hjá fiskimjölsverksmiðju SR-mjöls hf. í Helguvík og sagði Þórhallur Jónasson, gæðastjóri SR- mjöls, kolmunnann vera þokkalegasta hráefni. Hann sé reyndar mjög magur á þessum árstíma og gefi því af sér lítið lýsi. Líklega sé fituinnihaldið aðeins um 1­2%. Mjölnýtingin sé hins vegar nokkru hærri en í loðnu. "Kolmunnamjöl er að mörgu leyti ágætis afurð að því tilskildu að hráefnið sé gott þegar það kemur til vinnslu. Mér sýnist Hákon ÞH koma með gott hráefni að landi, miðað við hve löng sigling var af miðunum," sagði Þórhallur. MYNDATEXTI: KOLMUNNA dælt í lestar Hákons ÞH á miðunum á Hatton Rockal svæðinu, vestur af Írlandi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar