Safn Haraldar Böðvarssonar á Akranesi

Safn Haraldar Böðvarssonar á Akranesi

Kaupa Í körfu

HARALDUR Böðvarsson, kaupmaður og útgerðarmaður, hóf eigin útgerð 17. nóvember 1906, þegar hann keypti sexæringinn Helgu Maríu frá Garðinum. Kaupverðið var 200 krónur eða sama upphæð og hann hafði fengið fyrir hesta sína, eina meri og þrjú folöld. Hallgrímur Jónsson var meðeigandi og átti hann að vera formaður á bátnum en það var framlag hans til útgerðarinnar. Síðan eru liðin nær 100 ár og er fyrirtækið nú hluti af HB-Granda hf., sem er stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. MYNDATEXTI: Húsið - Haraldur Sturlaugsson framan við húsið á Vesturgötu 32, sem Haraldur Böðvarsson og Ingunn Sveinsdóttir létu byggja árið 1924.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar