Vesturbæjarlaug

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vesturbæjarlaug

Kaupa Í körfu

INNISUNDLAUG verður gerð við Vesturbæjarlaugina innan tíðar og verður byrjað á verkinu strax á næsta ári. Er þetta fyrsta meiriháttar framkvæmd við sundlaug í Reykjavík frá því stóra innilaugin í Laugardal var tekin í notkun. Íþrótta- og tómstundaráð ráðgerir nú að endurbæta og byggja við Vesturbæjarlaugina á næstunni og hefur borgarráð nýlega samþykkt að viðhafa forval vegna framkvæmda við laugina og hugsanlegrar aðstöðu til heilsubótar þar. Jafnvel er gert ráð fyrir að um einkaframkvæmd verði að ræða segir á heimasíðu Björns Inga Hrafnssonar, formanns borgarráðs. MYNDATEXTI: Breytingar - Sundlaugarnar verða tvær, ein úti auk innisundlaugarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar