Þríhnúkagígur

Eyþór Árnason

Þríhnúkagígur

Kaupa Í körfu

MIKILVÆGUM áfanga hefur verið náð í sögu hins undraverða hellis, Þríhnúkagígs í Bláfjallafólkvangi, dýpstu hraunhvelfingar heims, með uppsetningu öryggisgirðingar í kringum gígopið. Saga hellisins er reyndar 3.500 ára gömul og því þætti e.t.v. hrokafullt að fullyrða að girðing af mannahöndum sé mikilvægur áfangi í svo langri sögu. En sé tekið tillit til þeirrar merkingar sem útivistarfólk leggur í nálægð við slík náttúrufyrirbæri og þeirrar einföldu staðreyndar að hellisopið var farið að skemmast vegna átroðnings, má færa gild rök fyrir mikilvægi inngripa af þessum toga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar