Línuvinna við Sultartanga

Friðþjófur Helgason

Línuvinna við Sultartanga

Kaupa Í körfu

Vinna við Sultartangavirkjun stendur nú yfir af fullum krafti. Áætlað er að fyrri vélasamstæða virkjunarinnar verði tekin í notkun þann 15. október næstkomandi en sú seinni í lok janúar. Um 200 manns eru nú við vinnu á svæðinu, þeirra á meðal þessir menn sem á myndinni vinna að línulögn. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, ganga framkvæmdir að óskum. Hinn 4. október næstkomandi er ráðgert að sprengja haftið og hleypa vatni á í göngum virkjunarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar