Haustlauf á trjánum

Brynjar Gauti

Haustlauf á trjánum

Kaupa Í körfu

ÞAÐ eru ótal hlutir sem fylgja haustinu; skólarnir byrja, jólin nálgast, náttúran kastar af sér sumarhamnum og býr sig undir vetrarskrúðann. En þetta er skemmtilegur tími til að njóta útivistar. Litirnir á laufblöðum trjánna eru óviðjafnanlegir og veður eru oft á tíðum stillt, svo að yfirleitt gefst tilefni til að spóka sig utandyra. Haustið byrjaði með nokkuð kröftugum rigningum en þó hlýindum, síðan tók við rólegt veður í byrjun október, en eitthvað hafa nú veðurguðirnir skipt skapi, í það minnsta miðað við veðurspá helgarinnar. Spurningin er hvort þeir róist þegar líður á vikuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar