Björninn og SR 4.flokkur í íshokkí

Brynjar Gauti

Björninn og SR 4.flokkur í íshokkí

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMÓT Bjarnarins í íshokkíi fyrir fjórða flokk stendur nú yfir í Skautahöll Reykjavíkur, en á tímabilinu eru haldin þrjú slík mót. Liðin eru þrjú, frá Birninum, Skautafélagi Reykjavíkur og Skautafélagi Akureyrar, og leikur hvert lið tvo leiki við hvort hinna tveggja. Jafnan eru fimm leikmenn auk markvarðar inni á ísnum hjá hvoru liði, en leikmannaskiptingar eru mjög örar í íshokkíi og enn örari í þessum aldurshópi. Eru því að jafnaði 15 manns í liði auk markvarða. Súsanna Gunnarsdóttir, móðir tvegga leikmanna í Birninum, segir íþróttina vera mjög að sækja í sig veðrið hjá drengjum, en heldur mættu stúlkurnar vera fleiri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar