Grunnur í Hafnarfirði

Brynjar Gauti

Grunnur í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

UM helgina verður plata í grunni íbúðablokkar í Hafnarfirði steypt og fara um 1.300 rúmmetrar af steypu í plötuna. Fjórar steypustöðvar verða undirlagðar vegna verksins og 27 steypubílar sjá um að koma steypunni á réttan stað. Byggingin rís við norðurbakkann í Hafnarfirði gegnt veitingahúsinu A. Hansen. Undanfarna tvo mánuði hefur vatni verið dælt úr grunninum, um 170 tonnum á mínútu, og fer í um 240 tonn á mínútu um helgina en gert er ráð fyrir að dælingin standi yfir samtals í um þrjá mánuði. MYNDATEXTI: Flókið verkefni - Um 1.300 rúmmetrar af steypu fara í plötuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar