Borgarstjóri tekur á móti nýjum sorpbílum

Borgarstjóri tekur á móti nýjum sorpbílum

Kaupa Í körfu

TVEIR nýir metanknúnir sorpbílar voru teknir í notkun í gær hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Eldsneytið sem bílarnir ganga fyrir er unnið úr sorpinu sem safnað er í borginni og má því segja að bílarnir séu sjálfbærir um eldsneyti, að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra skrifstofu neyslu og úrgangs hjá Umhverfissviði. Nýju bílarnir eru vistvænni en sorpbílar með hefðbundnar dísilvélar, og eru auk þess hljóðlátari, að því er Guðmundur segir. Þeir eru búnir sjálfvirkum, rafknúnum tunnulyftum sem eru hannaðar á Íslandi hjá Ecoprocess hf. Lyfturnar eru hraðvirkari en venjulegar tunnulyftur og valda minni hávaða og loftmengun. MYNDATEXTI: Vistvænt - Sorpbílarnir ganga fyrir sorpinu sjálfu og eru því sjálfbær ökutæki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar