Fjör í Bláa lóninu

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fjör í Bláa lóninu

Kaupa Í körfu

VIÐ vitum að vísu ekki hvaða tilefni varð til þess að þessar föngulegu stúlkur ákváðu að stilla sér upp svo að vinkona þeirra gæti tekið mynd af þeim, en hins vegar má öllum vera ljóst að þegar maður á annað borð stillir sér upp fyrir myndatöku þá er aldrei að vita nema að ljósmyndari Morgunblaðsins sé nálægur og nýti tækifærið. Sú var allavega raunin í góða veðrinu í Bláa lóninu í gær, en þar minntu aðstæður frekar á suðræna sólarströnd heldur en íslenskt haust. Eftir hæfilega böðun í funheitu vatni er auðveldlega hægt að liggja í sólbaði á sundfötum einum klæða óháð hitastigi, allavega svo lengi sem sólin skín, vindar blása hóflega og veður er þurrt, en það er ástand sem mörgum þykir ekki ríkja nógu oft á Íslandi. Skiptin fáu vekja þó jafnan vonir og í Bláa lóninu í gær hvarflaði ekki að nokkrum manni að kvarta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar