Liggalá

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Liggalá

Kaupa Í körfu

Hún hannaði leikmyndina í bresku spennuþáttaröðinni Spooks, hefur starfað við sjónvarpsþætti í Nígeríu og er nú komin heim til Íslands. "Ég ætlaði bara að koma heim til Íslands í frí," segir Linda Stefánsdóttir, hönnuður sem búið hefur mestalla ævina í London, "en svo bauðst mér vinna við kvikmyndina Bjólfskviðu. Við þá viðkynningu heillaðist ég af landinu á ný og ekki hvað síst vinnukraftinum og sköpunargleðinni og það varð til þess að ég flutti heim aftur." ...Þessa dagana er það hins vegar breyting á versluninni Liggalá (áður Sipa) á Laugaveginum sem á hug Lindu allan. Eigendur verslunarinnar fengu hana til að hanna kjallara verslunarrýmisins með áherslu á það barnvæna en þau Kristín Stefánsdóttir og Hjörleifur Halldórsson vildu fá rými í verslunina sína sem væri nokkurs konar ævintýraheimur fyrir börn. MYNDATEXTI Furðuveröld Ævintýrahellir að hætti Lindu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar