Roman Abramovitsj og Ólafur Ragnar

Ragnar Axelsson

Roman Abramovitsj og Ólafur Ragnar

Kaupa Í körfu

Roman Abramovitsj lifði af þegar Pútín réðst til atlögu við ólígarkana og hefur aldrei verið áhrifameiri. Misha Glenny fjallar um ensku knattspyrnuna og áhrif rússneska auðjöfursins, sem keypti Chelsea og ákvað að ekkert skyldi til sparað í leikmannakaupum til að gera liðið að stórveldi í Evrópu. Stevens lávarður hefur til þessa einskis orðið vísari í rannsókn sinni á mútuhneykslinu í ensku úrvalsdeildinni. Málið, sem er enn til rannsóknar og snýst um ólöglegar greiðslur í kringum leikmannakaup, undirstrikar hins vegar hvernig peningar hafa spillt enskum fótbolta frá því að sjónvarpsstöðin Sky kom til sögunnar. MYNDATEXTI: Íslandsheimsókn - Roman Abramovitsj, héraðsstjóri í Tsjúkotka í Rússlandi, og Ólafur Ragnar Grímsson forseti í Bláa lóninu á föstudag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar