Snjór og fjör

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Snjór og fjör

Kaupa Í körfu

BÖRN í bænum hafa væntanlega brosað út að eyrum þegar þau komu út í bítið í gær; þá blasti við þeim langþráður snjór. Nokkuð snjóaði fyrr í vikunni en mikið bætti í aðfaranótt miðvikudagsins; laust fyrir hádegi í gær var jafnfallinn snjór orðinn um það bil 16 sentimetrar. Frostlaust var í gær, fallegt veður og víða börn að leik. Fullorðnir þurftu reyndar líka að bregða á leik, margir hverjir, því mikið var að gera á dekkjaverkstæðum bæjarins í gær eins og síðustu daga. MYNDATEXTI Hópurinn á skólalóð Giljaskóla var samhentur í gærmorgun og stefndi ótrauður að því að slá Akureyrarmetið í snjóboltagerð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar