Kristín Heiða Yngvadóttir verslunarstjóri

Líney Sigurðardóttir

Kristín Heiða Yngvadóttir verslunarstjóri

Kaupa Í körfu

Þórshöfn | Mikil stakkaskipti hafa orðið í verslunarmálum á Þórshöfn síðan verslunarkeðjan Samkaup opnaði hér matvöruverslun fyrir rúmum mánuði, eftir gjaldþrot verslunarinnar Lónsins. Óhætt er að segja að forsvarsmenn Samkaupa hafi staðið við heit sín um endurnýjun á húsnæðinu því unnið hefur verið fram á nætur við uppsetningu á nýjum búnaði og miklar endurbætur gerðar á verslunarrýminu, jafnt innan dyra sem utan. Það hefur því sannarlega birt yfir á Þórshöfn og ánægja er meðal íbúanna með að hafa fengið ágæta matvöruverslun með öflugan bakhjarl á svæðið. MYNDATEXTI: Nýjung - Kristín Heiða Yngvadóttir verslunarstjóri í nýju búðinni. Mikil ánægja er á Þórshöfn með verslunina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar