Jarðböðin við Mývatn

Birkir Fannar Haraldsson

Jarðböðin við Mývatn

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Baðfélag Mývatnssveitar fagnaði í gær 60 þúsundasta gestinum á árinu, sem var Ólafur H. Jónsson formaður Landeigendafélags Reykjahlíðar. Stefán Gunnarsson framkvæmdastjóri Jarðbaðanna afhenti Ólafi af þessu tilefni ársmiða í böðin fyrir hjón ásamt gjafaöskju með snyrtivörulínu fyrirtækisins. Að sögn Stefáns er þessi aðsókn framar öllum áætlunum og mikið fagnaðarefni. Hann segir útlendinga vera um 52% gesta. Á síðasta ári var búningsaðstaða aukin með útiklefum og nú í vikunni verður ráðist í breytingar á lóninu sem miða að því að ráða betur við hita í því þegar vindur blæs. MYNDATEXTI: Frítt inn - Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna, afhenti Ólafi H. Jónssyni ársmiða í Jarðböðin þar sem hann var gestur nr. 60.000.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar