Kettir á Flateyri

Kettir á Flateyri

Kaupa Í körfu

ÞESSI kettlingur gæti verið að beina þeim tilmælum til blaðamanns og ljósmyndara Morgunblaðsins að vinsamlega hætta að glápa og láta þau systkinin í friði. Litlu skinnin voru ásamt móður sinni og að minnsta kosti einu systkini í viðbót að þvælast um í brimvarnargarðinum á Flateyri í Önundarfirði. Ekki er ljóst hvort um villiketti var að ræða, eða einfaldlega gæludýr sem njóta frelsisins sem fylgir því að vera búsettur úti á landi. Þeir voru að minnsta kosti fljótir að láta sig hverfa í grjótið eftir að nefndur blaðamaður og ljósmyndari hófu að gefa frá sér hundahljóð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar