Gluggaþvottur í Austurstræti

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gluggaþvottur í Austurstræti

Kaupa Í körfu

NÚ þegar nóvember er runninn upp og veðrið tekið að versna veitir ekki af að þvo glugga í verslunum enda sest á þá af saltinu sem borið er á götur bæjarins. Það má því segja að það mæði mikið á auglýsingum og öðrum límmiðum í gluggum verslana um þessar mundir enda hefur verið bæði kalt og blautt í veðri að undanförnu. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um Austurstrætið var þessi starfsmaður að taka til hendinni og þvo glugga verslunarinnar. Einbeitingin skein úr andliti starfsmannsins og svo virðist sem andlitið á auglýsingunni fylgist vel með hvað er að gerast.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar