Café Victor

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Café Victor

Kaupa Í körfu

HJÓN sem lentu í átökum á skemmtistaðnum Café Victor um liðna helgi hafa lagt fram kæru til lögreglunnar í Reykjavík vegna þáttar fjögurra manna í málinu. Málsaðila greinir á um hvað þeim fór á milli. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær lentu hjónin í átökum á salerni skemmtistaðarins. Þar var læsing biluð og svo virðist sem mennirnir fjórir hafi gengið inn á konuna. Eiginmaður hennar kom að skömmu síðar og upp hófust átök. MYNDATEXTI: Vettvangur átakanna á Café Victor.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar