Virk samkeppni

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Virk samkeppni

Kaupa Í körfu

SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hefur gefið út bæklinginn Virk samkeppni - hagur almennings í þeim tilgangi að kynna starfsemina, skipulag og áherslur og auka vitund almennings og annarra um samkeppni og samkeppnisreglur. Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, ýtti bæklingnum úr vör á blaðamannafundi á Nordica hóteli í gær. Hann sagði að á smáum og að sumu leyti einangruðum markaði eins og hérlendis væri fákeppni nánast reglan og hún kallaði á viðameira starf samkeppnisyfirvalda en á stærri mörkuðum. MYNDATEXTI: Virk samkeppni - Guðmundur Sigurðsson, Gylfi Magnússon og Páll Gunnar Pálsson fletta bæklingnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar