Leikskólinn Sólborg

Reynir Sveinsson

Leikskólinn Sólborg

Kaupa Í körfu

Sandgerði | Öll börnin á leikskólanum Sólborgu í Sandgerði fengu á dögunum að gjöf ævintýrabækur um kettina Glingló og Dabba í jólaskapi. Eru þetta myndskreyttar sögur og vísur eftir Selmu Hrönn Maríudóttur en teikningarnar eru eftir Brynhildi Jenný Bjarnadóttur. Við sama tækifæri var opnaður vefurinn grallararnir.is. Þar má finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira sem getur orðið skemmtileg afþreying fyrir litla grallara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar